Ávarp oddvita Sjálfstæðisflokksins á Akureyri
Ágæta Sjálfstæðisfólk
Ég vil sem nýr oddviti Sjálfstæðisflokksins í Akureyrarkaupstað senda ykkur og fjölskyldum ykkar bestu óskir um gleðilega þjóðhátíð. Ég vil jafnframt þakka þann góða stuðning sem ég hef fengið frá fjölmörgum ykkar síðustu dagana. Ég tekst á við nýtt verkefni sem oddviti ykkar í bæjarstjórn af ákveðinni auðmýkt, en um leið fullur tilhlökkunar og áhuga.
Það eykur mér þor og kraft að finna þann mikla styrk sem felst í öflugu baklandi Sjálfstæðisflokksins hér í bæjarfélaginu og ég mun leitast við að halda hugsjónum og málefnum Sjálfstæðisflokksins til haga á vettvangi bæjarstjórnar.
Ég veit ég tala líka fyrir munn þeirra sem hafa nú tekið að sér nefndarstörf fyrir flokkinn í bæjarstjórn að við munum öll reyna eftir bestu getu að leitast við að halda uppi málefnalegri umræðu og veita nýjum meirihluta nauðsynlegt aðhald.
Því miður voru margir hæfir tilkallaðir, en fáir útvaldir til að gegna störfum í þeim nefndum sem komu í hlut Sjálfstæðisflokksins að þessu sinni. Það er því mikilvægara nú en nokkru sinni að okkur takist öllum í góðri samvinnu að virkja öflugt félagsstarf innan flokksins á nýju kjörtímabili og þannig hefja Sjálfstæðisflokkinn aftur til þeirrar stöðu sem honum ber hér í bæjarfélaginu.
Bestu kveðjur
Ólafur Jónsson, bæjarfulltrúi
Kaupangi v/Mýrarveg
600 Akureyri
Sími: 462 1500
Fax: 462 1504
Tölvupóstur