31. desember 2025
Við áramót

Við áramót fer Heimir Örn Árnason, formaður bæjarráðs og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, yfir liðið ár og stöðuna í bæjarmálunum á Akureyri þar sem margt hefur áunnist í farsælu samstarfi meirihlutans í bæjarstjórn en lítur einnig fram á veginn á nýju ári.
Áramót eru góður tími til að staldra við, líta yfir farinn veg og horfa fram á við. Framundan er mikilvægt ár fyrir Akureyri, bæði vegna áframhaldandi uppbyggingar í bænum og sveitarstjórnarkosninga sem fara fram í maí 2026. Þær kosningar munu snúast um traust, forgangsröðun og framtíðarsýn.
Frá því að Sjálfstæðisflokkurinn tók við meirihluta í bæjarstjórn, í samstarfi við L-listann og Miðflokkinn, hafa áherslurnar verið skýrar. Traust fjármálastjórn, uppbygging innviða og þjónusta sem mætir raunverulegum þörfum íbúa. Árangurinn af þeirri stefnu er augljós.
Ársreikningar öll árin á kjörtímabilinu hafa sýnt afar sterka stöðu. Reksturinn skilaði rúmlega tveggja milljarða króna afgang á síðasta ári og var það langt umfram áætlanir. Aðalsjóður var jákvæður í fyrsta sinn í áratug og skuldastaða bæjarins hefur batnað milli ára. Þetta er ekki tilviljun heldur afleiðing ábyrgra ákvarðana og skýrrar forgangsröðunar. Traustur fjárhagur er forsenda þess að hægt sé að byggja upp öfluga þjónustu og fjárfesta í framtíð Akureyrar.
Eitt stærsta verkefni næstu ára er þjónusta við stækkandi hóp eldri borgara. Frá upphafi kjörtímabilsins hefur verið lögð rík áhersla á samtal við eldri borgara og markvissa vinnu við að byggja upp betri og fjölbreyttari þjónustu fyrir þennan hóp.
Á fræðslu- og lýðheilsusviði hafa verið farnar nýjar leiðir með góðum árangri. Gjaldskrárbreytingar í leikskólum, símafrí í grunnskólum, lýðheilsukort og tekjutengdur frístundarstyrkur fyrir eldri borgara eru dæmi um aðgerðir sem hafa bein áhrif á daglegt líf íbúa. Rannsóknir sýna að breytingarnar í leikskólum hafa dregið úr álagi á starfsfólk og haft jákvæð áhrif á börnin.
Uppbygging í bænum er í fullum gangi. Íbúðauppbygging í Móa- og Holtahverfi, nýir byggingarreitir og styrking innviða eru lykilatriði til að mæta vaxandi þörfum. Velferðarmál eru jafnframt í forgangi, meðal annars með nýjum íbúðakjörnum fyrir fatlað fólk og vinnu við lausnir fyrir fólk með fjölþættan vanda. Þetta eru verkefni sem krefjast festu, ábyrgðar og langtímahugsunar.
Nú þegar styttist í lok kjörtímabilsins skiptir máli að halda áfram á sömu braut. Í maí 2026 munu bæjarbúar fá tækifæri til að meta hvort ofangreindar áherslur, þ.e. ábyrg fjármálastjórnun, uppbygging innviða og skýr framtíðarsýn sé sú vegferð sem þeir vilja halda áfram.
Við í Sjálfstæðisflokknum á Akureyri erum tilbúin til að standa undir þeirri ábyrgð og halda áfram að vinna fyrir bæjarbúa af heilindum og festu. Markmiðið er skýrt, að Akureyri verði áfram sterkt og framsækið fyrirmyndarsamfélag þar sem gott er að búa, starfa og ala upp börn.
Bestu áramótaóskir og þakkir fyrir gott samstarf á árinu sem er að líða.
Heimir Örn Árnason
formaður bæjarráðs og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

