Sjálfstæðisfólk hafnar þrengingu Glerárgötu

Stærsta breytingin í miðbæjarskipulagi sem samþykkt var í bæjarstjórn Akureyrar 6. maí s.l. er þrenging Glerárgötunnar frá Kaupvangsstræti norður að Grænugötu. Á þessum kafla götunnar á að þrengja hana úr 2+2 vegi í 1+1 (ein akrein í hvora átt). Allir flokkar í bæjarstjórn samþykktu tillöguna að deiliskipulagi
miðbæjarins nema Sjálfstæðisflokkurinn.
Miðað við umferðarmagn um götuna og þá staðla sem Vegagerðin notast við í sinni veghönnun þá stenst þrengingin ekki þær kröfur sem Vegagerðin gerir. Í nýsamþykktu miðbæjarskipulagi er einnig gert ráð fyrir að lækka leyfilegan hámarkshraða á Glerárgötunni úr 50 km í 40 km.
Staðlar Vegagerðarinnar ná ekki til gatna með hámarkshraða innan við 50 km og því er leikinn sá leikur að miða við staðla frá norsku vegagerðinni við rökstuðning þrengingarinnar. Hér er rétt að hafa í huga að ef af fyrirhugaðri þrengingu verður er þetta eini hluti þjóðvegar eitt með lægri hámarkshraða en 50 km.
Í svörum skipulagsdeildar við innsendum athugasemdum við ofangreint skipulag kemur fram að breytingin sé afturkræf því breyta má götustæðinu í 2+2 á nýjan leik ef þörf er á síðar. Það gæti nú reynst þrautin þyngri að koma á breytingum síðar þegar búið er að byggja verslunar-, skrifstofu- og íbúðarhúsnæði upp að götunni eins og dæmin sanna.
Umferðaröryggisúttekt
Í stefnuskrá Sjálfstæðisflokksins segir í kafla um miðbæinn: „Glerárgatan verður ekki þrengd- nýrra raungagna verði aflað um umferðarþunga –öryggi“. Ennfremur er lagt til að: „Unnin verði öryggisúttekt á umferðarmálum. Ákvarðanir um gatnagerð, undirgöng og göngubrýr verði teknar í kjölfarið“.
Við leggjum áherslu á að taka upplýstar ákvarðanir í þessum málaflokki sem og öðrum. Að mínu mati hefur þessum mikilvæga málaflokki verið of lítið sinnt á undanförnum árum.
Ég tel það eitt af forgangsatriðum eftir kosningar að hefja vinnu við gerð umferðaröryggisúttektar á vegum bæjarfélagsins. Í framhaldi verði svo unnin umferðaröryggisáætlun sem snýr fyrst og fremst að því að fækka slysum og óhöppum í umferðinni. Pólitískar ákvarðanir sem teknar yrðu í framhaldinu byggðust á þekkingu fremur en á tilfinningu.
Tilgangur úttektarinnar er að finna „svörtu blettina“ í umferðinni og gera áætlun um hvernig nýta má fjármagn með sem bestum hætti í umferðaröryggismálum og gera áætlun um lagfæringar. Einnig má leiða líkum að því að með slíkri áætlun verði íbúar bæjarins meðvitaðri um þennan málaflokk sem umferðaröryggismál eru, það er von mín að svo verði.
Hugsum heildrænt
Varðandi Glerárgötuna er rétt að hafa í huga hvaða áhrif þrengingin hefði á nærliggjandi götur eins t.d Kaupvangsstræti, Oddeyrargötu, Hamarstíg, Þingvallastræti, Eyrarlandsveg, Hrafnagilsstræti og Þórunnarstræti.
Það þarf að hugsa heildrænt í þessu samhengi það er hvernig fyrirhuguð framkvæmd hefði áhrif á heildarumferðarflæðið.
Afstaða okkar sjálfstæðisfólks varðandi Glerárgötuna er skýr. Við leggjumst gegn þrengingu hennar.