21. maí 2014

Spjallfundur um málefni eldri borgara

Spjallfundur um málefni eldri borgara verður haldinn á kosningaskrifstofunni, Strandgötu 3, föstudaginn 23. maí kl. 12:00. 

Frambjóðendur kynna stefnumál Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í málefnum eldri borgara. Halldór Blöndal, formaður Samtaka eldri sjálfstæðismanna og fyrrum ráðherra, flytur ræðu.

Boðið upp á hádegishressingu - allir velkomnir.