3. febrúar 2026

Röðunarfundur í fulltrúaráði í Naustaskóla 7. febrúar

Fulltrúaráð Sjálfstæðisflokksins á Akureyri kemur saman til fundar í Naustaskóla laugardaginn 7. febrúar nk. kl. 11:00. Þar verður kosið um fjögur efstu sætin á framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí nk. í svonefndri röðun, þar sem bæði aðal- og varafulltrúar í fulltrúaráði hafa atkvæðisrétt.

Með því að skrá sig með rafrænum skilríkjum inn á Mínar síður á vef Sjálfstæðisflokksins er hægt að sjá hvort viðkomandi sé aðal- eða varamaður í fulltrúaráði og geti þar af leiðandi tekið þátt í kosningunni.

Dagskrá:

10:30 Skráning á fundinn 
11:00 Fundur hefst – formaður kjörnefndar fer yfir ferlið í kosningu um efstu fjögur sætin
11:10 Kosning hefst – kynning frambjóðenda og kosið í hvert sæti fyrir sig

Fyrirkomulag kosningar

1. Kosið verður með skriflegri kosningu milli þeirra sem hafa gefið kost á sér í fyrstu fjögur sætin. Kosningin skal vera leynileg. Ef einungis einn frambjóðandi gefur kost á sér í sætið telst hann sjálfkjörinn.

2. Dregið verður um röð á framboðsræðum fyrir hverja lotu röðunarinnar.

3. Hver frambjóðandi má flytja eina aðal framboðsræðu, ræðutími er þrjár mínútur

a) Ef frambjóðandi hyggst gefa kost á sér í annað sæti og hefur þegar flutt framboðsræðu sína fær viðkomandi 1 mínútu til að gera grein fyrir framboði sínu.

b) Spurningar úr sal eru ekki leyfðar. Komi upp sú staða að spurningu sé beint til frambjóðanda og henni svarað skulu allir frambjóðendur í sama sæti fá kost á að svara þeirri spurningu.

4. Tilkynna skal úrslit eftir hverja umferð. Fá þá þeir sem höfðu gefið kost á sér í fyrri umferðinni kost á því að tilkynna um framboð í næsta sæti.

5. Úrslit verða einungis tilkynnt með fjölda atkvæða tveggja efstu í hvert sæti.


Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akureyri mun aftur funda síðar þegar tillaga kjörnefndar að skipan framboðslista flokksins í sveitarstjórnarkosningum 2026 í heild verður lögð fram. Þann fund sitja einungis aðalmenn í fulltrúaráðinu.