2. febrúar 2026

Kynningarfundur með frambjóðendum 4. febrúar

Kynningarfundur með frambjóðendum á röðunarfundi fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins á Akureyri fer fram í salnum Lóni á Hótel Akureyri, Hafnarstræti 73-75 miðvikudaginn 4. febrúar kl. 20:00.

Þar munu frambjóðendur geta kynnt sig betur og gert grein fyrir helstu áherslumálum. Frábært tækifæri til að gefa kost á sér eða spyrja frambjóðendur um kosningamálin.

Röðunarfundurinn fer fram í Naustaskóla laugardaginn 7. febrúar kl. 11:00. Aðal- og varamenn í fulltrúaráði hafa atkvæðisrétt á fundinum.