12. júní 2025

Ræða Jens Garðars Helgasonar í eldhúsdagsumræðum á Alþingi

Virðulegur forseti og góðir landsmenn,

Kosningloforð og prinsip þeirrar vinstristjórnar sem nú situr við völd fuku út í hafsauga með fyrsta andvaranum sem blés um Austurvöll, og enginn sýnilegur áhugi er hjá stjórnarliðum að reyna að finna þau aftur. Enda fer stærstur tíminn hjá hæstvirtri ríkisstjórn í að sannfæra þjóðina um að hér sé mikil verkstjórn á ferðinni og í stjórnarliðinu séu allir kumbaya.

En verkstjórnin lætur ekki góðar skattahækkanir fram hjá sér fara hvort sem það er á hinn vinnandi mann eða atvinnulífið í landinu. Eina nýsköpunin hjá hæstvirtri ríkisstjórn er nýyrðasmíði yfir alla nýju skattana sem lætur öldungana í Árnastofnun blikna í samanburði.

Það er flestum landsmönnum að verða það deginum ljósara að vinstristjórnin sem nú er við völd á Íslandi helst einstaklega illa á fé. Hún eyðir meira en hún aflar.

Engar hugmyndir um verðmætasköpun

Seilast á svo enn dýpra í vasa hinna vinnandi stétta, meðal annars með því að ráðast á samsköttun hjóna, með kílómetragjaldi, hækkun skatta á einyrkja og þvinga sveitarfélög í að hámarka útsvar sitt sem leiðir af sér skattahækkun á 95.000 einstaklinga. Steininn tekur síðan úr þegar að skerða þarf ellilífeyrir verkafólks til að standa undir nýju örorkukerfi.

Stjórnin hefur einnig boðað að stórhækka álögur og skatta á atvinnulífið í landinu. Enginn sleppur undan kæfandi faðmi skattastjórnarinnar. Og sanniði til, þau eru bara rétt að byrja. Hefði ekki verið nær að skattastjórnin veitti skattgreiðendum þessa lands stundarfrið frá pólitískri óstjórn í fjármálum ríkisins og taki frekar til í eigin ranni.

Það sem er sorglegast við stefnu vinstristjórnarinnar er að hún hefur engar tillögur eða hugmyndir um hvernig við getum aukið verðmætasköpun og fjárfestingu í landinu. Engar! Þjóð sem hefur alla möguleika til að nýta þau ómældu tækifæri sem eru allt í kringum okkur. Þjóð sem á ógrynni af hugvitsömum einstaklingum sem hafa kjark og þor til að skapa eitthvað nýtt ef réttur jarðvegur er fyrir hendi. En nei.

Frekar á að kreista blóð úr steini úr atvinnulífinu, og fjölskyldurnar í landinu munu finna fyrir því að ráðstöfunarfé heimilinna mun minnka. Starfmenn álveranna, sjómenn, læknar, iðnaðarmenn og allir sem í sveita síns andlits vinna heiðarlega fyrir framfærslu sinni og sinna, munu sitja eftir með minna milli handanna, ef að frumvörp vinstristjórnarinnar ná fram að ganga.

Ríkisvaldið skal þjóna borgurunum - ekki öfugt

Margaret Thatcher sagði eitt sinn; Það er ekki neitt sem heitir opinbert fé – það er bara fé skattgreiðenda.

Það fé sem skattgreiðendur þessa lands láta af hendi til ríkisins þarf að umgangast af virðingu og ekki sem sjálfgefnu. Landsmenn fundu fyrir því í tíð síðustu vinstristjórnar og eiga nú að finna fyrir því aftur – hærri skattar sem drepa frumkvæði, og kæfa nýsköpun. Þegar skattar hækka, minnkar hvatinn til að leggja hart að sér, og fjárfesting minnkar.

Við viljum samfélag þar sem ríkisvaldið þjónar borgurunum – ekki öfugt. Þar sem skattar eru hóflegir, reglur skynsamar og frelsið er heilagt. Ríkisafskipti eru ekki lausnin – ríkisafskipti eru vandamálið.

Góðir Íslendingar,

Við Sjálfstæðismenn höfum trú á einstaklingsframtakinu – höfum trú á að með hugviti og eljusemi getum við skapað enn meiri verðmæti sem styðja við áframhaldandi velferð Íslendinga. En það er því miður ekki þannig hjá núverandi stjórnvöldum og þegar að skyggst er á bak við frasafroðuna hjá hæstvirtri ríkisstjórn þá kemur í ljós að þetta er bara vinstristjórn Jóhönnu Sigurðardóttir 2.0 – sem á endanum verður uppiskroppa með annarra manna fé.


Jens Garðar Helgason
varaformaður Sjálfstæðisflokksins