31. maí 2025
Grátstafir og skattaræði

Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, skrifar um vandræðagang ríkisstjórnarinnar sem er upptekin við að hækka skatta og fara fram af lítilli stjórnvisku.
Það er lítilmannlegt að kenna öðrum um eigin ráðaleysi eins og dómsmálaráðherra gerði um sl. helgi og fékk bágt fyrir í þingsal í byrjun vikunnar. Stór mál ráðherra nutu ekki meiri hljómgrunns en svo innan eigin ríkisstjórnar að hunda- og kattahald og nafngift stofnunar voru tekin fram yfir mikilvæg útlendingamál og landamæravörslu. Þetta risti eðlilega djúpt hjá ráðherra, en í staðinn fyrir að taka harmakveinið út á ríkisstjórnarfundi sakaði hún stjórnarandstöðuna um að tefja fyrir málunum í útvarpsviðtali.
Þær ásakanir áttu vitaskuld ekki við nokkur rök að styðjast enda bauð minnihlutinn hinni sanngjörnu og réttlátu ríkisstjórn Íslands að færa málið framar svo hægt væri að koma þeim í gegn og þannig treysta stoðir Íslands í útlendingamálum. Ráðherra lét nú vera að segja takk heldur hélt áfram með skæting í ræðupúlti Alþingis, þrátt fyrir að hafa fengið meiri aðstoð frá fólkinu sem hún sakar um „tafaleiki“ en sinni eigin ríkisstjórn. En gott og vel.
Í yfirlætisfullum ræðum sínum, þegar Þorbjörg Sigríður reyndi með veikum mætti að svara stjórnarandstöðunni, hélt ráðherrann áfram innantómum ásökunum um að stjórnarandstaðan hefði aðeins eitt erindi á Alþingi og það væri að gæta sérhagsmuna. Fleira hefði hún ekki upp á að bjóða, svona fyrir utan auðvitað að hjálpa ráðherranum að marka sín spor í nýja starfinu.
Erindi Sjálfstæðisflokksins á Alþingi er mjög skýrt. Það er að berjast gegn skattastjórninni sem hefur falið tilgang sinn með frasafroðu og fallegum orðum. Staðan er einföld. Skattastjórnin er með í pípunum að hækka skatta á allt að 95.000 manns. Veiðigjöld, aukin skattlagning ferðaþjónustunnar, afnám samsköttunar hjóna og lokun á svokölluðu EHF-gati. Skattahækkanir á skattahækkanir ofan.
Það hefur verið erindi Sjálfstæðisflokksins í tæpa öld að gæta hagsmuna borgaranna í landinu og stuðla að verðmætasköpun fyrir framþróun lands og þjóðar. Því munum við halda áfram nú sem endranær.
Jens Garðar Helgason
varaformaður Sjálfstæðisflokksins
Jens Garðar Helgason
varaformaður Sjálfstæðisflokksins