Yfirlýsing frá frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins á Akureyri


Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í sveitarstjórnarkosningum 31. maí nk. hafa sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:
Í tilefni af ummælum sem fram komu í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag, sunnudaginn 13. apríl, um að Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri væri búinn að ákveða að Gunnar Gíslason, oddviti listans, væri bæjarstjóraefni flokksins er rétt að eftirfarandi komi fram:
Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri leggur áherslu á að forsvarsmenn Akureyrarbæjar láti að sér kveða og tali máli bæjarins, þannig að eftir því sé tekið á landsvísu. Þá skiptir ekki máli hvort bæjarstjórinn er kjörinn bæjarfulltrúi eða ekki, aðalmálið er að menn séu samstíga og röddin heyrist.
Sjálfstæðisflokkurinn leggur ekki áherslu á að ráðinn sé pólitískur bæjarstjóri eins og fullyrt var í þættinum, það hefur aldrei verið sett fram af hálfu flokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.
Komi flokkurinn að meirihlutasamstarfi eftir kosningar mun hann leggja til að auglýst verði eftir bæjarstjóra.