Bæjarmálafundur 14. apríl


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 14. apríl kl. 18:30
(ath. breytta tímasetningu).
Njáll Trausti Friðbertsson, varabæjarfulltrúi, flytur framsögu um bæjarmálin. Rætt t.d. um skipulagslýsingu fyrir Norður Brekku - neðri hluta, framtíð innanlandsflugsins, ársreikning Akureyrarbæjar (en fyrri umræða fer nú fram um hann í bæjarstjórn) og stefnuumræðu um samfélags- og mannréttindaráð.
Nefndarmenn og áheyrnarfulltrúar gera grein fyrir stöðu mála í þeirra nefndum.
Gunnar Gíslason, oddviti framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, fer yfir stöðu mála í kosningabaráttunni.
Kl. 20:00 hefst svo fundur um framtíð innanlandsflugsins þar sem Njáll Trausti og Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia, flytja framsögu.
Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Málfundafélagsins Sleipnis.
Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.
SFS