18. febrúar 2014
Umræðufundur um utanríkismál


Málfundafélagið Sleipnir heldur umræðufund um utanríkismál í Kaupangi laugardaginn 22. febrúar kl. 11:00. Megináhersla verður á stöðu Evrópumálanna, en skýrsla Hagfræðistofnunar um stöðu aðildarviðræðna við ESB hefur nú verið lögð fram.
Tómas Ingi Olrich, formaður utanríkismálanefndar Sjálfstæðisflokksins og fyrrum ráðherra og sendiherra, og Halldóra Hjaltadóttir, formaður Ísafoldar, félags ungs fólks gegn ESB, flytja framsögu og svara fyrirspurnum.
Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Málfundafélagsins Sleipnis.
Boðið upp á létta morgunhressingu - allir velkomnir.
SFS