19. febrúar 2014

Pizzufundur og PubQuiz

Vörður, félag ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, heldur pizzufund í Kaupangi föstudaginn 21. febrúar kl. 20:00.

Halldóra Hjaltadóttir, formaður Ísafoldar, félags ungs fólks á móti ESB-aðild, og Ásgeir Geirsson, formaður Herjans, félags stúdenta gegn ESB-aðild, kynna starfsemi félaganna og svara fyrirspurnum.

Að loknum fundinum upp úr kl. 21:00 mun Stefán Friðrik Stefánsson stýra PubQuiz, laufléttum spurningaleik þar sem verða 2-3 í liði.







SFS