13. ágúst 2022

Þórhallur Harðarson gefur kost á sér til formennsku í kjördæmisráði

Yfirlýsing frá Þórhalli Harðarsyni

 

Góðan daginn vinir

Hef ákveðið að bjóða mig fram sem formann Kjördæmisráðs Norðausturkjördæmis á næsta aðalfundi sem fram fer 3. september 2022 á Akureyri.

Ég er ekki ókunnugur starfi flokksins eða kjördæmisráðsins. Hef verið virkur í starfinu síðustu 17 ár. Er skráður í flokkinn 3. maí 1994 og hóf þá að starfa með ungum í Keflavík en sveitarfélögin voru sameinuð 11. júní 1994, eins og flestir þekkja líklega.

Var gjaldkeri kjördæmisráðsins í ein átta ár, er fimmti maður á lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri og sit í Umhverfis- og mannvirkjaráði, Samráðshóp um málefni fatlaðs fólks og varamaður í Öldungaráði Akureyrarbæjar, sjá nánar hér fyrir neðan um núverandi trúnaðarstörf fyrir flokkinn.

Núverandi trúnaðarstörf:

Fulltrúi - Stjórnar kjördæmisráða

Fulltrúi - Fulltrúaráðið Akureyri

Fulltrúi - Miðstjórn

Sveitarstjórnarfulltrúi 2022 - Sveitarstjórnarmenn og frambjóðendur í aðalsætum

Flokksráð

Fulltrúaráð

Ég sit einnig í stjórn Landsambands heilbrigðisstofnana á Íslandi og er gjaldkeri þar.

Hlakka til að sjá ykkur sem flest á aðalfundi kjördæmisráðsins.

 

Kveðja Þórhallur Harðarson

S: 892 3091