16. ágúst 2022

Fundur um bæjarmálin 24. ágúst

Boðað er til fundar um bæjarmálin á Bryggjunni (salur að austanverðu á jarðhæð) miðvikudaginn 24. ágúst kl. 20:00.

Heimir Örn Árnason, forseti bæjarstjórnar og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, Lára Halldóra Eiríksdóttir, bæjarfulltrúi, og Þórhallur Jónsson, varabæjarfulltrúi, flytja framsögu og fara yfir fyrstu mánuði hjá meirihlutanum.

Hver verða helstu áherslumálin í skipulagsmálum, fræðslu- og lýðheilsumálum, velferðarmálum o.fl.

Allir velkomnir. Heitt á könnunni og hægt að kaupa sér bjór á sanngjörnu verði.