1. júní 2014
Sjálfstæðisflokkurinn stærstur - hlaut þrjá bæjarfulltrúa


Sjálfstæðisflokkurinn er sigurvegari sveitarstjórnarkosninganna á Akureyri. Hann hlaut 2.222 atkvæði og 25,8% - þrjá menn kjörna; Gunnar Gíslason, Evu Hrund Einarsdóttur og Njál Trausta Friðbertsson.
Við þökkum þeim sem kusu Sjálfstæðisflokkinn sem stærsta aflið í bæjarstjórn Akureyrar næstu fjögur árin kærlega fyrir stuðninginn. Sjálfstæðisflokkurinn tvöfaldaði fylgi sitt og saman tryggðum við glæsilega kosningu baráttumannsins Njáls Trausta.
Við mætum sterk til leiks í bæjarstjórn og heitum því að vinna af krafti fyrir okkar málum og fyrir Okkar Akureyri.