22. október 2018

Samtal við bæjarstjóra 27. október

Næstkomandi laugardag, þann 27. október, ætlar stjórn Sjálfstæðisfélagsins á Akureyri að blása til laugardagsfundar í Kaupangi klukkan 11-12. 

Við ætlum að eiga saman létt morgunspjall við bæjarstjórann okkar.  Setjast niður með kaffibollann og fræðast eitthvað um Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra og vita hvernig henni líst á starfið og framtíð bæjarins okkar. 

Hittumst í Kaupangi og eigum góða stund saman.