8. febrúar 2017

Ólöf Nordal látin

Ólöf Nor­dal, vara­formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, alþing­ismaður og fyrr­ver­andi ráðherra, lést í morg­un á Land­spít­al­an­um eft­ir erfið veikindi. Hún var fimm­tug að aldri - fæddist 3. des­em­ber 1966. For­eldr­ar henn­ar eru Jó­hann­es Nor­dal, fv. seðlabanka­stjóri, og Dóra Guðjóns­dótt­ir Nor­dal, pí­anó­leik­ari og hús­freyja.

Ólöf ólst upp í Laug­ar­ásn­um í Reykja­vík og var næstyngst af sex systkin­um, Beru, Sig­urði, Guðrúnu, Sal­vöru og Mörtu. Hún útskrifaðist með stúd­ents­próf frá Mennta­skól­an­um í Reykja­vík árið 1986, lög­fræðipróf frá Há­skóla Íslands árið 1994 og MBA-gráðu frá Há­skól­an­um í Reykja­vík árið 2002.

Ólöf starfaði lengi við lög­fræðistörf og varð deild­ar­stjóri í sam­gönguráðuneyt­inu árið 1996. Ólöf starfaði hjá Verðbréfaþingi Íslands á árunum 1999-2001. Auk þess sinnti Ólöf stunda­kennslu í lög­fræði við Viðskipta­há­skól­ann á Bif­röst 1999-2002. Hún var deild­ar­stjóri viðskipta­lög­fræðideild­ar skól­ans 2001-2002.

Þaðan lá leið Ólaf­ar til Lands­virkj­un­ar, þar sem hún var yf­ir­maður heild­sölu­viðskipta 2002-2004. Ólöf varð framkvæmdastjóri sölusviðs hjá RARIK árið 2004, allt þar til raf­magnssala var tek­in inn í sér­stakt fyr­ir­tæki, Orku­söl­una árið 2005, og varð þá framkvæmdastjóri Orkusölunnar til ársins 2006.

Ólöf gekk ung í Sjálf­stæðis­flokk­inn og hafði brennandi áhuga á stjórnmálum. Hún stofnaði Sjálfstæðiskvennafélagið Auði á Austurlandi og gegndi þar formennsku 2006-2009. Hún gaf kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi haustið 2006 og náði þar glæsilegum árangri, hlaut þriðja sætið á eftir Kristjáni Þór Júlíussyni og Arnbjörgu Sveinsdóttur.

Ólöf kom sem ferskur blær í stjórnmálastarf Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu - ávann sér velvild og virðingu allra sem henni kynntust og störfuðu með. Sjálfstæðisflokkurinn vann kosningasigur vorið 2007 og Ólöf flaug inn á þing - flokkurinn var mjög nærri því að ná inn fjórða manni, Þorvaldi Ingvarssyni. Sem þingmaður var Ólöf varaformaður samgöngunefndar og átti sæti m.a. í  fjár­laga­nefnd, allsherjarnefnd, kjör­bréfa­nefnd, sér­nefnd um stjórnarskrármál, ut­an­rík­is­mála­nefnd, stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd og velferðarnefnd þings­ins.

Ólöf gaf kost á sér í Reykjavík í kosningunum 2009, sem boðað var til í pólitískum átökum eftir hrunið, og sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn þar til ársins 2013, er hún tók sér hlé frá stjórnmálabaráttu og fylgdi eiginmanni sínum í krefjandi störfum hjá Alcoa. Hún var formaður bankaráðs Seðlabankans 2013-2014, þar til hún varð ráðherra.

Ólöf varð innanríkisráðherra í desember 2014, fyrsti utanþingsráðherra Sjálfstæðisflokksins síðan Geir Hallgrímsson var utanríkisráðherra 1983-1986 - Ólöf endurreisti virðingu innanríkisráðuneytisins og starfsfrið um það eftir mikla átakatíma og sýndi með því hvers hún var megnug í stjórnmálastarfi.


Ólöf var varaformaður Sjálfstæðisflokksins 2010-2013 og svo aftur frá árinu 2015. Hún var aftur kjörin á þing í kosningunum í október og sat sem innanríkisráðherra þar til ný ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar tók við í síðasta mánuði.

Ólöf greind­ist með krabba­mein árið 2014 - hún háði hetjulega baráttu við sitt mein og sinnti störfum sínum lengst af með veikindabaráttunni og vakti aðdáun og virðingu fyrir æðruleysi sitt í baráttunni.

Eft­ir­lif­andi eiginmaður Ólaf­ar er Tóm­as Már Sig­urðsson, for­stjóri. Börn þeirra Ólaf­ar eru Sigurður, Jóhannes, Herdís og Dóra .


Sjálfstæðismenn á Akureyri og í Norðausturkjördæmi öllu minnast Ólafar Nordal með hlýju og virðingu. Við þökkum Ólöfu baráttu sína í þágu lands og þjóðar - hún var glæsilegur forystumaður Sjálfstæðisflokksins. Ólöf sýndi með verkum sínum hversu heilsteypt og sönn hún var.

Við vottum fjölskyldu hennar innilega samúð okkar.