Aðalfundir hjá Verði, Vörn og Sjálfstæðisfélagi Hríseyjar


Aðalfundir Varnar, Varðar og Sjálfstæðisfélags Hríseyjar hafa nú verið haldnir.
Aðalfundur Varnar var haldinn í Kaupangi 13. febrúar. Svava Þ. Hjaltalín var endurkjörin formaður. Svava hefur setið í stjórn Varnar frá 2011, fyrst sem varaformaður og síðan formaður frá 2012. Að auki sitja í aðalstjórn: Gerður Ringsted, Heiðrún Ósk Ólafsdóttir, Helga Ingólfsdóttir og Lára Halldóra Eiríksdóttir. Í varastjórn voru kjörnar: Anna Rósa Magnúsdóttir, Margrét S. Jónsdóttir og Hjördís Stefánsdóttir.
---
Aðalfundur Varðar var haldinn í Kaupangi 8. febrúar. Pálmi Þorgeir Jóhannsson var endurkjörinn formaður. Hann hefur gegnt formennsku frá árinu 2015. Að auki sitja í aðalstjórn: Axel Þórhallsson, Hjörvar Blær Guðmundsson, Íris Ósk Gísladóttir, Ívar Breki Benjamínsson, Melkorka Ýrr Yrsudóttir og Stefán Jeppesen. Í varastjórn voru kjörin: Vala Rún Sigurpálsdóttir, Máney Nótt Ingibjargardóttir og Daníel Sigurður Eðvaldsson
.
---
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Hríseyjar var haldinn 12. febrúar. Kristinn Frímann Árnason var endurkjörinn formaður. Kristinn Frímann var varaformaður félagsins 2005-2010 en hefur síðan verið formaður. Að auki voru kjörnir í aðalstjórn: Heimir Sigurgeirsson,
Narfi Björgvinsson, Pétur Ásgeir Steinþórsson og Smári Thorarensen. Í varastjórn voru kjörin: Bára Jónína Steinsdóttir og Árni Kristinsson.
Nýkjörnum stjórnum Varnar, Varðar og Sjálfstæðisfélags Hríseyjar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.