16. febrúar 2015

Oktavía lætur af formennsku í fulltrúaráðinu

Oktavía Jóhannesdóttir hefur látið af formennsku í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Akureyri vegna flutninga til Reykjavíkur. Jón Orri Guðjónsson, varaformaður fulltrúaráðsins, hefur tekið við formennsku fram að aðalfundi síðla þessa mánaðar.

Oktavía Jóhannesdóttir var bæjarfulltrúi á Akureyri 1998-2006. Hún var fyrst bæjarfulltrúi Akureyrarlista og Samfylkingar og undir lokin bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, en hún gekk til liðs við flokkinn árið 2005.

Oktavía sat í stjórn Varnar, félags sjálfstæðiskvenna á Akureyri, 2006-2012, fyrst sem ritari, svo varaformaður og loks formaður. Oktavía tók við formennsku í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna árið 2011. Hún hefur setið í félagsmálaráði bæjarins af hálfu flokksins frá 2010, en var áður formaður þeirrar nefndar 1998-2002.

Sjálfstæðismenn á Akureyri þakka Oktavíu kærlega gott samstarf og einlæga vináttu í gegnum tíðina og óska henni góðs gengis á nýjum vettvangi.


Stefán Friðrik Stefánsson
ritstjóri Íslendings