17. febrúar 2015
Atvinnumálanefnd stofnuð að nýju


Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í dag var samþykkt tillaga um að stofna að nýju sérstaka atvinnumálanefnd. Elías Gunnar Þorbjörnsson verður aðalmaður í atvinnumálanefnd að hálfu Sjálfstæðisflokksins og verður Þórhallur Jónsson varamaður hans.
Matthías Rögnvaldsson, forseti bæjarstjórnar, verður formaður atvinnumálanefndar, og auk hans og Elíasar sitja í nefndinni Jóhann Jónsson, Erla Björg Guðmundsdóttir og Margrét Kristín Helgadóttir. Sóley Björk Stefánsdóttir verður áheyrnarfulltrúi.