Lárus Jónsson látinn


Lárus Jónsson, fyrrum alþingismaður, bankastjóri og bæjarfulltrúi á Akureyri, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi, 29. nóvember, 82 ára að aldri.
Lárus fæddist á Ólafsfirði 17. nóvember 1933. Foreldrar hans voru Jón Ellert Sigurpálsson, skipstjóri, og Unnur Þorleifsdóttir, húsmóðir. Lárus útskrifaðist með stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1954 og viðskiptafræðipróf frá Háskóla Íslands árið 1960. Lárus var formaður Garðars, félags ungra sjálfstæðismanna á Ólafsfirði, 1962-1968, og sat í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna 1964-1969.
Lárus kvæntist Guðrúnu Jónsdóttur 10. september 1955. Þau eignuðust saman fjögur börn; Jón Ellert, Unnar Þór, Mörtu Kristínu og Jónínu Sigrúnu. Unnar Þór lést árið 2010.
Lárus var starfsmaður Veðurstofu Íslands samhliða háskólanámi. Hann var bæjargjaldkeri í Ólafsfirði 1960-1968, starfsmaður Efnahagsstofnunarinnar með aðsetur á Akureyri 1968-1970 og framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Norðlendinga 1970-1971. Lárus var bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Ólafsfirði 1966-1970 og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri 1970-1974 - hann sat í skipulagsnefnd bæjarins það kjörtímabil. Lárus var umdæmisstjóri Rótarýhreyfingarinnar á Íslandi 1967-1968 og sat í stjórn Rotary Norden 1974-1984.
Lárus var alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra á árunum 1971-1984 og oddviti flokksins í kjördæminu 1979-1984, er hann lét af þingmennsku til að taka við bankastjórastöðu í Útvegsbankanum. Á þingmannsferli sínum sat Lárus lengi í fjárveitinganefnd (nú fjárlaganefnd) og var formaður hennar síðasta ár sitt á þingi.
Áður en Lárus tók sæti á Alþingi var hann um tíma ritstjóri Íslendings-Ísafoldar, en sameiginlegt blað var gefið út í samstarfi við Morgunblaðið á árunum 1968-1972, áður en Íslendingur var aftur stofnaður í upphaflegri mynd árið 1973. Skrif Lárusar um byggðamál í Íslendingi vöktu jafnan mikla athygli, enda var hann með yfirgripsmikla þekkingu á málefnum hinna dreifðu byggða og sást það vel á þingmannsferli hans.
Lárus var bankastjóri Útvegsbankans á árunum 1984-1987. Hann sinnti sérfræðistörfum á eigin vegum fyrst í stað eftir að bankastjóraferlinum lauk en var svo framkvæmdastjóri Félags rækju- og hörpudisksframleiðenda 1988-1991. Starfsferlinum lauk Lárus sem framkvæmdastjóri Lánasjóðs íslenskra námsmanna á árunum 1991-1999.
---
Sjálfstæðismenn á Akureyri minnast Lárusar Jónssonar með hlýhug og þakka fyrir störf hans og forystu í þágu Sjálfstæðisflokksins. Eftirlifandi eiginkonu hans og fjölskyldu allri færum við innilegar samúðarkveðjur á kveðjustundu. Blessuð sé minning mæts félaga.
Ræða sem Lárus Jónsson flutti á framboðsfundi á Akureyri í kosningabaráttunni 1970, er hann var kjörinn í bæjarstjórn Akureyrar
Stefán Friðrik Stefánsson
ritstjóri Íslendings