7. maí 2014

Kynning á frambjóðendum í nýrri útgáfu Íslendings

Íslendingur, blað fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna, er komið út. Í blaðinu eru myndir úr starfinu og kynningar á sjö efstu frambjóðendum á lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, fyrir sveitarstjórnarkosningar 31. maí nk, undir heitinu Hin hliðin.

Stefán Friðrik Stefánsson, ritstjóri Íslendings, lagði fyrir frambjóðendur fjölbreyttar spurningar sem snúast í senn bæði um stjórnmál og það sem stendur frambjóðendum nærri persónulega. Með fylgir svo mynd af efstu mönnum í því hlutverki sem þau ætluðu að stefna á þegar þau yrðu stór.


Blaðið má lesa hér - (kosningablað Íslendings)