Bæjarmálafundur 5. maí


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn á kosningaskrifstofunni að Strandgötu 3 mánudaginn 5. maí kl. 20:00.
Ólafur Jónsson, bæjarfulltrúi, og Njáll Trausti Friðbertsson, varabæjarfulltrúi, flytja framsögu um bæjarmálin.
Stefán Friðrik Stefánsson, áheyrnarfulltrúi í skipulagsnefnd, fer yfir stöðu skipulagsmála en fjölmörg stór skipulagsmál liggja fyrir fundinum, t.d. miðbæjarskipulag, Glerárvirkjun og 3. áfangi Naustahverfis - Haga.
Einnig rætt t.d. um ársreikning Akureyrarbæjar, (en seinni umræða fer nú fram um hann í bæjarstjórn). Nefndarmenn og áheyrnarfulltrúar gera grein fyrir stöðu mála í þeirra nefndum.
Gunnar Gíslason, oddviti framboðslista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, fer yfir stöðu mála í kosningabaráttunni.
Njáll Trausti gerir grein fyrir stöðu mála varðandi Reykjavíkurflugvöll.
Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Málfundafélagsins Sleipnis.
Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.
SFS