24. janúar 2017
Kosið í þingnefndir


Kosið var í nefndir Alþingis á þingfundi í dag. Njáll Trausti Friðbertsson og Valgerður Gunnarsdóttir, alþingismenn Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi, sitja bæði í tveimur þingnefndum og sinna að auki alþjóðastarfi.
Njáll Trausti situr í fjárlaganefnd og stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og auk þess i Íslandsdeild vestnorræna ráðsins og Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál.
Valgerður situr í umhverfis- og samgöngunefnd og allsherjar- og menntamálanefnd og auk þess í Íslandsdeild Norðurlandaráðs.