17. janúar 2017

Baldvin í fræðsluráð

Á fundi bæjarstjórnar Akureyrar í dag var samþykkt að Baldvin Valdemarsson, bæjarfulltrúi, taki sæti í fræðsluráði í stað Hönnu Daggar Maronsdóttur, sem hættir í ráðinu af persónulegum ástæðum. Hanna Dögg hefur verið í skólanefnd og síðar fræðsluráði frá því í janúar 2016.