Hamingjustund sjálfstæðiskvenna 17. september


Landssamband sjálfstæðiskvenna stendur fyrir „Happy Hour“ eða hamingjustund sem ber yfirskriftina „Konur til áhrifa“ á Aurora barnum á Icelandair Hotel, Þingvallastræti 32, Akureyri, fimmtudaginn 17. september nk kl. 17:00 til 19:00.
Heiðursgestir hamingjustundarinnar verða Hanna Birna Kristjánsdóttir varaformaðurSjálfstæðisflokksins og Valgerður Gunnarsdóttir Alþingismaður.
Aurora barinn veitir 50% afslátt af bjór á dælu, víni hússins, Freixenet Cordon Negro Brut freyðivíni, gosi, kaffi og kokteilum vikunnar.
Hamingjustundin er fastur liður hjá sjálfstæðiskonum og gleðin er ávallt í fyrirrúmi.
Fjölmennum og njótum þess að hitta aðrar sjálfstæðar og skemmtilegar konur.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flestar!
Stjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna.