11. september 2015
Bæjarmálafundur 14. september


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 14. september kl. 17:30.
Bæjarfulltrúarnir Gunnar Gíslason, Eva Hrund Einarsdóttir og Njáll Trausti Friðbertsson flytja framsögu um bæjarmálin - nefndarmenn gera grein fyrir stöðu mála í sínum nefndum
.
Fyrir fundinum liggur stefnuræða formanns velferðarráðs og umræða um fjármál sveitarfélaga. Farið verður að auki yfir málefni framkvæmdaráðs og stjórnar Fasteigna Akureyrarbæjar.
Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.