Gunnar Hnefill Örlygsson - framboðskynning


Gunnar Hnefill Örlygsson, framkvæmdamaður og fjármálaverkfræðinemi, Húsavík, gefur kost á sér í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi 29. maí nk.
"Ég er Þingeyingur fæddur á Húsavík, sonur Örlygs Hnefils Jónssonar lögmanns, fyrrum stjórnarforma
nns
Byggðastofnunar og varaþing
manns
og Valgerðar Gunnarsdóttur skólameistara og fyrrum alþingisma
nns
.
Ég er framtakssamur og hóf snemma minn starfsferil í byggingarvinnu og síðar sjómennsku. Um tvítugt fór ég í eigin atvinnurekstur ásamt bróður mínum og föður í ferðaþjónustu
, sem hefur verið mín aðal vinna í um áratug. Einnig hef ég starfað sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður.
Ég er formaður Mjölnis félags ungra Sjálfstæðismanna í
Þ
ingeyjarsýslum.
Ég hef s
etið í stjórn Samtaka atvinnurekanda á
N
orðausturlandi og stjórn Húsavíkurstofu.
Ég er útskrifaður frá verk- og raunvísindadeild Keili
s
, menntaður slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður og er nú í námi í fjármálaverkfræði við Háskólann í Reykjavík.
Frá æsku hef ég haft mikinn áhuga á þjóðmálum , uppbyggingu og framþróun, sá áhugi hefur aukist me ð árunum. Kjördæmi okkar er stórt, öflugt og hefur upp á að bjóða fjölmörg tækifæ ri bæði í smærri og stærri byggðum þess . Ég vil bjóða fram krafta mína til þess að sækja enn frekar fram fyrir kjördæmið allt . Greiða götu nýrra atvinnuvega og aukinna tækifæra til nýsköpunnar í rótgrónum atvinnugreinum .
Ég hef fulla trú á því að með öflugum lista getum við sjálfstæðismenn náð á ný þremur þingmönnum í Norðausturkjördæmi og óska eftir stuðningi ykkar til að ná þriðja sæti á þeim framboðslista."