Gauti Jóhannesson - framboðskynning


Gauti Jóhannesson, forseti sveitarstjórnar í Múlaþingi, Djúpavogi, gefur kost á sér í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi 29. maí nk.
"Ég er fæddur á Höfn í Hornafirði 7. mars 1964 , næstyngstur af sjö systkinum , giftur tveggja barna faðir . Ég lauk námi frá K HÍ 1991 og hef einnig lokið Diploma námi í skólastjórnun frá sama skóla. Ég starfaði sem skólastjóri á Suðurlandi 1994-2001 og á Djúpavogi frá 2001-2005. Árin 2005-2009 starfaði ég í sjávarútvegi að framleiðslu – og markaðsmálum. Ég starfaði sem sveitarstjóri í Djúpavogshreppi 2010-20 20 . Árið 2020 leiddi ég lista Sjálfstæðisflokksins til sigurs í fyrstu kosningum til sveitarstjórnar í nýstofnuðu Múlaþingi með 29% fylgi. Ég á sæti í stjórn SSA og Austurbrúar og hef setið í fjölda nefnda og ráða á sveitarstjórnarstiginu.
Meginá herslur mínar eru byggða- og atvinnumál. É g hef talað fyrir bættri opinberri stafrænni þjónustu til hagsbóta fyrir íbúa á landsbyggðinni. Síðast en ekki síst er ég talsmaður einföldunar á regluverki með það fyrir augum að auka samkeppnishæfi íslensks atvinnulífs og auðvelda íbúum um landið allt líf og störf, en íþyngja þeim ekki.
Grunnurinn að gengi Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi í kosningunum í haust , þar sem flokkurinn ætti að stefna að þremur þingsætum, verður lagður í prófkjörinu nú í vor.
Ég
er tilbúinn að leiða sjálfstæðisfólk í Norðausturkjördæmi á þeirri vegferð."