12. september 2020

Fundur með Njáli Trausta 15. september

Málfundafélagið Sleipnir boðar til umræðufundar í Kaupangi þriðjudaginn 15. september kl. 20:00.

Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður, flytur framsögu og svarar fyrirspurnum. Rætt um skosku leiðina í innanlandsfluginu, framkvæmdir á Akureyrarflugvelli, atvinnumálin og stöðuna í pólitíkinni í upphafi þingvetrar, en Alþingi kemur saman að nýju 1. október nk.

Fundarstjóri: Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Sleipnis.


Allir velkomnir - heitt á könnunni

Gætt verður að sóttvörnum, við minnum á eins metra regluna.