11. september 2020

Bæjarmálafundur 14. september

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 14. september kl. 17:30.

Rætt verður td um málefni lögreglunnar á Norðurlandi eystra í kjölfar lokunar fangelsins á Akureyri, árshlutareikning Akureyrarbæjar 2020, niðurstöðu starfshóps um forgangsröðun framkvæmda íþróttamannvirkja, framgang íþróttastefnu Akureyrarbæjar og skipulagsmál.

Allir velkomnir. Gætt verður að sóttvörnum og fjöldi fundarmanna takmarkaður ef þess mun gerast þörf.

Fundarstjóri: Eva Hrund Einarsdóttir, bæjarfulltrúi.