25. október 2022

Fundur með Helga Áss 29. október

Helgi Áss Grétarsson, borgarfulltrúi og frambjóðandi til embættis ritara Sjálfstæðisflokksins, heldur fund á Bryggjunni, Strandgötu 49, Akureyri, laugardaginn 29. október 2022, frá kl. 11.00-12.30. 

Í framsögu Helga verður m.a. fjallað um sjálfstæðisstefnuna, ritaraframboðið og almenn stjórnmálaviðhorf en að henni lokinni verða umræður.