44. landsfundur Sjálfstæðisflokksins um helgina


44. landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður haldinn helgina 4. - 6. nóvember nk. Landsfundur fer með æðsta vald í málefnum flokksins og þar er stefna hans mótuð. Hann er stærsta stjórnmálasamkoma á Íslandi og störf hans hafa mikil áhrif, bæði inn í stjórnmálin en einnig út á við til þjóðarinnar.
Seturétt á landsfund eiga flokksráðsfulltrúar flokksins auk þess sem félög og fulltrúaráð kjósa fulltrúa til setu á fundinum.
- Til þess að sjá hvort þú sért í flokksráði (og þar með sjálfkjörin) ferðu á mínar síður – Flokkurinn – Núverandi trúnaðarstörf – Flokksráð og/eða Sjálfkjörin/n á landsfund
- Fulltrúar sem kosnir hafa verið á landsfund geta frá og með 20. október séð það á mínum síðum – Flokkurinn – Núverandi trúnaðarstörf – Kjörin/n á landsfund.
Landsfundur verður formlega settur með yfirlitsræðu formanns síðdegis á föstudegi en málefnastarf hefst í Laugardalshöll fyrir hádegi. Þar verður hádegismatur landsfundarfulltrúa í öllum kjördæmum á föstudeginum.
Hóf fyrir landsfundarfulltrúa í Norðausturkjördæmi verður á föstudagskvöldinu í sal Flugvirkjafélagsins í Borgartúni 22 (gamla Karphúsið) á 3. hæð milli kl. 20:00 og 23:00. Léttar veitingar í boði.
Landsfundarhóf verður í Laugardalshöll á laugardagskvöldinu milli kl. 19:30 og 01:00.
Allar nánari upplýsingar:
Dagskrá fundarins
Landsfundargjöld
Tilboð fyrir landsfundarfulltrúa