Fundur í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Akureyri 15. nóvember


Fundur verður í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna á Akureyri, í Kaupangi, mánudaginn 15. nóvember kl. 20:00.
Dagskrá:
1. Tillaga stjórnar fulltrúaráðs um aðferð við val á framboðslista Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar vorið 2022
2. Kosning kjörnefndar. (kjörnir fjórir aðalmenn og fjórir varamenn af hálfu fulltrúaráðs)
3. Önnur mál
Stjórn leggur til að röðun muni fara fram í fulltrúaráði við val á efstu sætum framboðslista í kosningunum 2022.
Seturétt á fundinum hafa þeir sem hafa verið til þess kjörnir á aðalfundum sjálfstæðisfélaganna á Akureyri og fengið boð í tölvupósti.
Tekið er mið af nýjum sóttvarnarreglum sem gera ráð fyrir 50 manna hámarki, eins metra fjarlægð óskyldra aðila og grímuskyldu.
Vakin er athygli á því að fulltrúar í ráðinu geta gefið kost á sér í kjörnefnd með því að hafa samband við formann fyrir fundinn eða tilkynnt um það á fundinum sjálfum.
Skráning á fundinn fer fram HÉR
F.h. stjórnar fulltrúaráðsins;
Ásgeir Örn Blöndal Jóhannsson, formaður