29. október 2021

Bæjarmálafundur 1. nóvember

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 1. nóvember kl. 17:30.

Rætt t.d. um breytingar á samþykkt um stjórn og fundarsköp Akureyrarbæjar og reglum um ritun fundargerða, vinnu við fjárhagsáætlun 2022, fréttir frá stjórn Norðurorku, umhverfis- og mannvirkjaráði og stjórn Hafnarsamlagsins.


Allir velkomnir.


Fundarstjóri verður Lára Halldóra Eiríksdóttir, varabæjarfulltrúi