Fundur fyrir landsfundarfulltrúa frá Akureyri 19. október


42. landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður haldinn helgina 23. - 25. október, í Laugardalshöll í Reykjavík. Ræða Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra og formanns Sjálfstæðisflokksins, verður á föstudeginum kl. 16:30. Dagskrá landsfundar
Undirbúningsfundur fyrir landsfundarfulltrúa frá Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudagskvöldið 19. október kl. 19:15
, á eftir bæjarmálafundi. Þar verða kjörbréf afhend til fulltrúa og rætt um helstu atriði tengd landsfundinum.
Minnum landsfundarfulltrúa að greiða fundargjaldið fyrir hádegi á miðvikudegi, 21. október. Fyrir þann tíma er gjaldið 9000 kr, eftir það er gjaldið 11.000 kr. Hægt er að greiða fyrir sama tíma bæði landsfundargjaldið og landsfundarhóf á 16.900 kr.
Greiða landsfundargjald
Drög að ályktunum
landsfundar liggja nú fyrir á vef flokksins.
Minnum ennfremur á
tilboð vegna landsfundar
, í gistingu, bíl og flug.