12. janúar 2018

Formannsskipti í Verði, félagi ungra sjálfstæðismanna á Akureyri

Aðalfundur Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, var haldinn í Kaupangi í kvöld. Hjörvar Blær Guðmundsson var kjörinn formaður Varðar í stað Pálma Þorgeirs Jóhannssonar sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Hjörvar hefur setið í stjórn Varðar frá 2016 og verið varaformaður síðasta árið.

Auk Hjörvars voru kjörin í aðalstjórn: Axel Þórhallsson, Ívar Breki Benjamínsson, Kristján Blær Sigurðsson, Melkorka Ýrr Yrsudóttir, Vala Rún Sigurpálsdóttir og Þorsteinn Kristjánsson. Í varastjórn voru kjörin Máney Nótt Ingibjargardóttir, Sævar Helgi Víðisson og Íris Ósk Gísladóttir.

Nýkjörinni stjórn Varðar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.