23. apríl 2017

Bæjarmálafundur 24. apríl

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 24. apríl kl. 17:30.

Rætt um skipulagsmál, stefnuræðu velferðarráðs og málefni barnafjölskyldna á Akureyri, en Gunnar Gíslason, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, hefur óskað eftir sérstakri umræðu um þau í bæjarstjórn nú.

Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.