16. október 2015

Bæjarmálafundur 19. október

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 19. október kl. 17:30. 

Bæjarfulltrúar flytja framsögu um bæjarmálin - nefndarmenn gera grein fyrir stöðu mála í sínum nefndum.

Að loknum bæjarmálafundi kl. 19:15 verður fundur fyrir landsfundarfulltrúa þar sem kjörbréf verða afhend og farið yfir ýmis mál tengd landsfundi.

Sjálfstæðismenn eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.