18. febrúar 2018
Bæjarmálafundur 19. febrúar


Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi mánudaginn 19. febrúar kl. 17:30 þar sem málefni bæjarstjórnarfundar 20. febrúar verða rædd.
Á dagskrá bæjarmálafundarins verða eftirtalin mál til umræðu og kynningar:
- Stefnuskrá xd – staða mála
- Skipulagsmál
- Álagning gjalda – fasteignagjöld 2018 – endurskoðun á reglum um afslátt elli- og örorkulífeyrisþega.
- Umhverfismál – samgöngusamningar
- Aðalskipulag Akureyrar 2018-2030 – Athugasemdir og svör.
- Önnur mál
Fundarstjóri verður Baldvin Valdemarsson, bæjarfulltrúi.
Sjálfstæðismenn á Akureyri eru eindregið hvattir til að mæta og ræða bæjarmálin.