16. febrúar 2018

Aðalfundur fulltrúaráðs - Ásgeir Örn kjörinn formaður

Ásgeir Örn Blöndal var kjörinn formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri á aðalfundi í Kaupangi í gærkvöldi, í stað Hörpu Halldórsdóttur sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Á fundinum var samþykkt tillaga stjórnar um lagabreytingu þess efnis að fjölga um einn bæði í aðal- og varastjórn.

Auk hans voru Baldvin Jónsson, Jón Orri Guðjónsson og Rúnar Sigurpálsson kjörnir í aðalstjórn fulltrúaráðs á aðalfundinum. Auk þeirra sitja í stjórn formenn sjálfstæðisfélaganna á Akureyri;

Anna Rósa Magnúsdóttir, formaður Sjálfstæðisfélags Akureyrar
Hjörvar Blær Guðmundsson, formaður Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna
Kristinn Frímann Árnason, formaður Sjálfstæðisfélags Hríseyjar
Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Málfundafélagsins Sleipnis
Svava Þ. Hjaltalín, formaður Varnar, félags sjálfstæðiskvenna

Í varastjórn fulltrúaráðs voru kjörin: Þórunn Sif Harðardóttir, Aron Elí Gíslason, Marsilía Dröfn Sigurðardóttir og Heiðrún Ósk Ólafsdóttir.


Í upphafi fundar voru kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins á Akureyri á landsfund 16. - 18. mars nk. og í lok fundarins var samþykkt tillaga kjörnefndar að skipan framboðslista flokksins í sveitarstjórnarkosningunum í vor.

Í fundarlok fór Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, yfir stöðuna í upphafi kosningabaráttunnar. Njáll Trausti Friðbertsson, alþingismaður, tók til máls að auki ásamt Kristni Frímanni Árnasyni, formanni kjördæmisráðs og kynnti aðalfund kjördæmisráðsins, sem fram fer í Mývatnssveit 3. mars nk.