17. mars 2019

Bæjarmálafundur 18. mars

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Geislagötu 5 (gengið inn að norðan) mánudaginn 18. mars kl. 17:30.

Farið verður yfir helstu mál sem verða á  dagskrá bæjarstjórnarfundar Jóhann Gunnar Kristjánsson, varaformaður hafnarstjórnarinnar, fer yfir helstu verkefni hafnarinnar á árinu 2024.  Ásgeir Örn Blöndal formaður og Hildur Brynjarsdóttir stjórnarmaður úr Fallorku fara yfir stöðu Fallorku. Hildur Brynjarsdóttir nefndarmaður í öldungaráði fer einnig yfir helstu áherslur öldungaráðs fyrir árið 2024. 

Fundarstjóri er Heimir Örn Árnason, formaður bæjarráðs og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri

Allir velkomnir - heitt á könnunni

 

Dagskrá bæjarmálafunda fram á vor

15. apríl 2024
Þórhallur Harðarson nefndarmaður í umhverfis- og Mannvirkjaráði fer yfir helstu verkefni UMSA á árinu 2024. Einnig er farið yfir helstu mál sem eru á bæjarstjórnarfundi. Dagskrá fundarins er inn á akureyri.is.

Fundarstjóri er bæjarfulltrúi Lára Halldóra Eiríksdóttir


6. maí 2024
Heimir Örn Árnason formaður bæjarráðs fer yfir fyrstu drög ársreikning fyrir árið 2023.  Einnig er farið yfir helstu mál sem eru á bæjarstjórnarfundi. Dagskrá fundarins er inn á akureyri.is

Fundarstjóri er bæjarfulltrúi Heimir Örn Árnason