27. febrúar 2021

Bæjarmálafundur 1. mars

Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins á Akureyri verður haldinn í Kaupangi og í fjarfundi á Zoom mánudaginn 1. mars kl. 17:30.

Rætt t.d. um  nýja skíðalyftu, tillögur um uppbyggingu í Tónatröð, aðalskipulagsbreytingar á Oddeyri, málefni Öldrunarheimila Akureyrar, staðsetningu HSN norðan Glerár, miðbæjarskipulag og lögreglusamþykkt Akureyrar .


Í Kaupangi geta aðeins 30 fundarmenn verið á sama tíma og verða þeir að vera með andlitsgrímur þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra fjarlægð milli einstaklinga.


Tengill á fundinn


Fundarstjóri verður Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri