Að loknum aðalfundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri


Ásgeir Örn Blöndal var endurkjörinn formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akureyri á aðalfundi í Kaupangi í gærkvöldi. Ásgeir Örn hefur gegnt formennsku frá árinu 2018.
Auk hans voru Heiðrún Ósk Ólafsdóttir, Rúnar Sigurpálsson og Valdemar Karl Kristinsson kjörin í aðalstjórn fulltrúaráðs á aðalfundinum. Auk þeirra sitja formenn sjálfstæðisfélaganna á Akureyri í stjórn fulltrúaráðs;
Jóhann Gunnar Kristjánsson, formaður Sjálfstæðisfélags Akureyrar
Kristinn Frímann Árnason, formaður Sjálfstæðisfélags Hríseyjar
Kristján Blær Sigurðsson, formaður Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna
Stefán Friðrik Stefánsson, formaður Málfundafélagsins Sleipnis
Svava Þ. Hjaltalín, formaður Varnar, félags sjálfstæðiskvenna
Í varastjórn fulltrúaráðs voru kjörin; Fannberg Jensen, Harpa Halldórsdóttir, Ólafur Rúnar Ólafsson og Þórunn Sif Harðardóttir.
Jón Orri Guðjónsson sem verið hefur ritari stjórnar fulltrúaráðs frá árinu 2018 og setið í aðal- og varastjórn síðastliðinn áratug, td bæði sem formaður Varðar og Sjálfstæðisfélags Akureyrar, gaf ekki kost á sér til endurkjörs og var honum þökkuð vönduð og góð störf sín sem ritara og stjórnarmanns síðustu ár.