27. ágúst 2014

Aðalfundur Varðar, f.u.s. á Akureyri 4. september

 

Aðalfundur Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, verður haldinn í Kaupangi við Mýrarveg fimmtudaginn 4. september kl. 20:00.

Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf

Á fundinum verður lögð fram tillaga stjórnar félagsins til lagabreytinga.

Framboð til stjórnar félagsins skulu berast til Jóns Orra Guðjónssonar, formanns Varðar, á netfangið jonorri@simnet.is

Nýir félagar eru velkomnir.

 

Stjórn Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri