Aðalfundur Málfundafélagsins Sleipnis


Aðalfundur Málfundafélagsins Sleipnis var haldinn í Kaupangi í kvöld. Stefán Friðrik Stefánsson var endurkjörinn formaður Sleipnis. Stefán Friðrik hefur setið í stjórn Sleipnis frá árinu 2006, var ritari félagsins 2006-2008, varaformaður 2010-2011 og formaður frá 2011. Stefán Friðrik hefur verið ritstjóri Íslendings frá árinu 2010 og var formaður Varðar, f.u.s. 2003-2006.
Auk Stefáns Friðriks voru kjörnir í aðalstjórn: Ármann Sigurðsson, Edvard van der Linden, Jón Oddgeir Guðmundsson og Ragnar Ásmundsson. Í varastjórn voru kjörin: Davíð Þ. Kristjánsson, Hjördís Stefánsdóttir og Unnsteinn E. Jónsson.
Á aðalfundinum var samþykkt samhljóða tillaga stjórnar að lagabreytingum. Stjórnin lagði fram tillögu að nýjum lögum í heild í fimm köflum með sextán greinum.
Í fundarlok flutti Gunnar Gíslason, bæjarfulltrúi, ræðu og fór þar yfir stöðu bæjarmálanna að loknum kosningum og voru umræður um bæjarmálin í kjölfarið.
Nýkjörinni stjórn Sleipnis er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.