Aðalfundur Varðar, f.u.s.


Aðalfundur Varðar, félags ungra sjálfstæðismanna á Akureyri, var haldinn í Kaupangi í kvöld. Pálmi Þorgeir Jóhannsson var kjörinn formaður Varðar, í stað Ketils Sigurðar Jóelssonar, sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Pálmi hefur setið í stjórn Varðar frá árinu 2011 og hefur verið gjaldkeri Varðar frá árinu 2013.
Auk Pálma voru kjörin í aðalstjórn: Axel Þórhallsson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Daði Guðvarðarson, Ingvar Leví Gunnarsson, Ketill Sigurður Jóelsson og Melkorka Ýrr Yrsudóttir. Í varastjórn voru kjörin Baldvin Jónsson, Anna Jenný Jóhannsdóttir og Daníel Sigurður Eðvaldsson.
Nýkjörinni stjórn Varðar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.