7. febrúar 2015

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Akureyrar

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Akureyrar var haldinn í Kaupangi í dag. Jón Orri Guðjónsson var endurkjörinn formaður félagsins. Jón Orri hefur verið formaður félagsins frá árinu 2014 en var áður formaður Varðar 2012-2014.

Auk Jóns Orra voru kjörin  í aðalstjórn: Bjarni Sigurðsson, Svanhildur Dóra Björgvinsdóttir, Þórhallur Jónsson og Þórunn Sif Harðardóttir. Í varastjórn voru kjörin: Elías Gunnar Þorbjörnsson, Harpa Halldórsdóttir, Finnur Sigurgeirsson, Þórarinn Kristjánsson og Rannveig Kr. Brynjólfsdóttir.

Á fundinum var samþykkt tillaga stjórnar að lagabreytingum og tillaga um að innheimta félagsgjald á fyrrihluta ársins. 

Nýkjörinni stjórn Sjálfstæðisfélags Akureyrar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.