8. febrúar 2016

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Akureyrar

Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Akureyrar var haldinn í Kaupangi í kvöld. Þórhallur Jónsson var kjörinn formaður félagsins í stað Jóns Orra Guðjónssonar, sem gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Þórhallur hefur setið í stjórn frá árinu 2014.

Auk Þórhalls voru kjörin  í aðalstjórn: Anna Rósa Magnúsdóttir, Bjarni Sigurðsson, Harpa Halldórsdóttir og Þórunn Sif Harðardóttir. Í varastjórn voru kjörin: Elías Gunnar Þorbjörnsson, Rúnar Sigurpálsson, Rannveig Kr. Brynjólfsdóttir, Þórarinn Kristjánsson og Finnur Sigurgeirsson.

Á fundinum var samþykkt tillaga stjórnar að félagsgjald verði 2.500 kr. á starfsárinu og var stjórn falið að útfæra innheimtu þeirra og koma með tillögur í þeim efnum.

Nýkjörinni stjórn Sjálfstæðisfélags Akureyrar er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.