Aðalfundur Málfundafélagsins Sleipnis


Aðalfundur Málfundafélagsins Sleipnis var haldinn í Kaupangi í kvöld. Stefán Friðrik Stefánsson var endurkjörinn formaður. Stefán Friðrik hefur setið í stjórn Sleipnis frá árinu 2006, var ritari félagsins 2006-2008, varaformaður 2010-2011 og formaður frá 2011. Stefán Friðrik hefur verið ritstjóri Íslendings frá árinu 2010 og var formaður Varðar, f.u.s. 2003-2006.
Auk Stefáns Friðriks voru kjörnir í aðalstjórn: Edvard van der Linden, Ingvar Leví Gunnarsson, Jón Oddgeir Guðmundsson og Ragnar Ásmundsson. Í varastjórn voru kjörnir: Jón Orri Guðjónsson, Baldvin Jónsson og Davíð Þ. Kristjánsson.
Að loknum aðalfundarstörfum flutti Njáll Trausti Friðbertsson, bæjarfulltrúi, ræðu og fór yfir bæjarmálin, einkum með hliðsjón frá þeim nefndum sem hann situr í fyrir hönd flokksins, og voru umræður í kjölfarið.
Nýkjörinni stjórn Sleipnis er óskað til hamingju með kjörið og góðs gengis í félagsstörfum á næsta starfsári.